Entry: Ragna ljósmóðir May 14, 2006



hvað er betra en að vakna um miðjar nætur og hlaupa skjálfandi niður í fjárhús? kuldagallinn minn var frosinn í nótt þegar ég ætlaði að skokka niðureftir í smá eftirlitsferð.. en hetjan ég lét það ekki á mig fá og þaut eins og eldibrandur í fjárhúsin, sá mér svo til mikillar ógleði að það voru nokkrar rolluskjátur að farað bera. Hafði gert mér vonir um að allar rollurnar hefðu tekið sig saman um það að halda afturendanum á sér saman og biða fram á morgun með að skjóta litlum lömbum í heiminn. Nei nei ég mátti láta mig hafa það að liggja fram á garðabandinu og glápa á rollurassa þar til allt var í góðu lagi. Þá var gott að geta skriðið upp í rúm til Ívars jafn illa lyktandi og rolla sem er búin að liggja í sínum eigin skít í nokkra mánuði og með frosnari tær en flest ykkar hafið nokkurtíman séð.

annnars er bara allt gott að frétta.. er byrjuð að vinna svona aðeins á milli þess að vera heimavinnandi húsmóðir og ljósmóðir á næturvöktum. Átti góða kvöldstund á barnum í Végarði föstudaginn síðasta, þar sem landsvirkjun sló upp gríðar dansleik. Menn voru gríðarhressir og fannst ekkert skemmtilegra en að reynað draga mig af barnum og á dansgólfið og reynað þröngva ofan í mig alls konar áfengum vökvum.. ég er bara ekki frá þvi að mér hafi líkað barþjónastarfið vel. Gaman að horfa á ofurölfað fínt fólk!

kveð í bili.. þarf að koma börnunum í háttinn

Ragna Fanney

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments